Vottanir og gæðamál
Jafnlaunavottun Fjarskiptastofu - Nr. skírteinis EQ 724081
Þann 24. mars 2021 hlaut Fjarskiptastofa jafnlaunavottun skv. IST 85 jafnlaunastaðlinum.
ISO/IEC 27001 öryggisvottun - Nr. skírteinis IS 723974
Þann 19. maí 2020 hlaut Fjarskiptastofa öryggisvottunina ISO/IEC 27001 sem er stjórnkerfi upplýsingaöryggis.
ISO/IEC 27001 er alþjóðlegur staðall fyrir upplýsingaöryggiskerfi og sá algengasti á heimsvísu. Vottunin er viðurkenning á því að upplýsingatæknikerfum FST er stýrt á þann máta sem tryggir trúnað, réttleika og tiltækileika þeirra gagna sem Fjarskiptastofa vinnur með hverju sinni.
Mikilvægi öryggis í upplýsingatækni hefur stóraukist á undanförnum árum og starfsfólk og stjórnendur Fjarskiptastofu leggja metnað í standast nútímakröfur.